Róbert Aron Garðarsson Proppé er Íslandsmeistari Barþjóna 2025

Sunnudaginn 6.april lauk kokteila hátíðinni Reykjavík Cocktail Week með glæsilegu galakvöldi í Gamla Bíó þar sem úrslit í kokteila keppnunum hátíðarinnar fóru fram.
Hátíðin stóð yfir dagana 31.mars til 6. apríl, yfir 50 viðburðir fóru fram á 34 stöðum sem tóku þátt í hátíðinni í ár.

Um 600 manns mættu á EXPÓIÐ sem fór fram í Hörpu síðastliðinn miðvikudag og voru þar samankomnir um 20 birgjar áfengra vara sem kynntu vörur sínar, þar fóru einnig undankeppnir í Íslandsmóti Barþjóna og þemakeppni Reykjavík Cocktail Week sem var með hálofta þema þetta árið. Gestir gátu eingöngu notið fljótandi veiga því einnig fengu fjölmargir sér húðflúr sem var í boði, einn keppandi nýtti einnig tækifærið og bar fram bónorð upp á sviði, hún sagði JÁ!

Úrslita kvöldið sjálft var svo í Gamla Bíó þar sem fjöldi fólks var saman kominn til þess að fylgjast með úrslitum í keppnunum og njóta frábærra veitinga sem komu frá Klúbbi Matreiðslumeistara.
Íslandsmót Barþjóna:
1. Róbert Aron Vídó Proppe – Drykk
2. Pétur Kolka – OTO
3. Bruno Falcoa – Bonn
4. Deividas Deltuvas – Sæta Svínið
5. Alex Örn Heimisson – Apótek
Þemakeppnin 2025:
1. Alexander Jósef Alvarado – Jungle með drykkinn Red Eye
2. Auður Gestsdóttir – Tipsý með drykkinn Staffamatur
3. Heimir Morthens – Drykk með drykkinn Saga Class

 

Reykjavík Cocktail Week drykkur ársins: Tipsy

Kokteilbar ársins: Jungle

Fagleg vinnubrögð íslandsmót: Jacek Rudecki
Fallegasti drykkurinn: Pétur Kolka
Besti klassíski kokteillinn: Pétur Kolka með drykkinn Negroni Della Vita

Róbert Aron Íslandsmeistari Barþjóna