Barþjónaklúbbur Íslands heldur Aðalfund sinn 2025 í kjallaranum á Sæta Svíninu þriðjudaginn 4. nóvember kl. 17:00 (ENGLISH BELOW)
Stjórn BCI hvetur alla meðlimi til þess að mæta og nýta atkvæðisrétt sinn. Einnig verður kosið um tillögu að lagabreytingum. Lög klúbbsins má finna hér!
Í ár verður kosið um 3 stjórnarmenn og 2 varamenn. Ef þú hefur áhuga á því að bjóða þig fram í stjórn væri gott að fá að vita af því fyrirfram. Þú getur tilkynnt þitt framboð með því að senda okkur póst á bar@bar.is
Léttar veitingar verða í boði frá Tapas Barnum og Mekka Wines & Spirits á meðan fundi stendur.
Dagskrá Aðalfundar er eftirfarandi:
- Kosning fundarstjóra og fundarritara
- Skýrsla stjórnar
- Reikningar klúbbsins
- Lagabreytingar
- Ákvörðun árgjalds
- Stjórnarkosning
- Kosning endurskoðenda
- Alþjóðlegt samstarf
- Framtíðarhorfur og skipulag
- Önnur mál
Einnig mun fara fram kynning á störfum Barþjónaklúbbs Íslands!
Eftir Aðalfund verður svo haldin hin árlega keppni um hraðasta barþjóninn í samstarfi við Mekka Wines & Spirits og Fernet Branca! Keppendur þurfa að gera 3 tegundir af drykkjum á sem skemmstum tíma. Öll tæki, tól og hráefni verða á staðnum og þurfa því keppendur ekki að koma með neitt með sér. Vegleg verðlaun verða í boði fyrir sigurvegarann!
ATH! Takmarkað pláss er fyrir keppendur, þannig að við hvetjum áhugasama að skrá sig sem fyrst! Fyrstur kemur, fyrstur fær.
Eftir keppni verða svo græjurnar stilltar í botn og sungið og dansað fram á nótt.
Allir barþjónar geta mætt og skráð sig í klúbbinn, ásamt því að taka þátt í kvöldinu. Allir nýjir meðlimir frá gjafabréf út að borða að andvirði 10.000 kr.
Dagskrá kvöldsins:
- 17:00 – Húsið opnar, léttar veitingar og spjall
- 18:00 – Aðalfundur hefst
- 20:30 – Keppnin um hraðasta barþjóninn
- 23:00 – Partý
Stjórn BCI hlakkar til að sjá sem flesta á Sæta Svíninu, þriðjudaginn 4. nóvember kl. 18:00!
The Bartender’s Club of Iceland (BCI) will be holding its Annual General Meeting (AGM) 2025 in the basement of Sæta Svínið on Tuesday, November 4th at 17:00!
The BCI Board encourages all members to attend and exercise their right to vote.
The club’s bylaws can be found here.
Light refreshments from Tapas Barinn and Mekka Wines & Spirits will be offered during the meeting.
The agenda for the Annual Meeting is as follows:
- Election of meeting chairperson and secretary
- Board report
- Club finances
- Bylaw amendments
- Determination of membership fees
- Board elections
- Election of auditors
- International cooperation
- Future prospects and planning
- Other matters
There will also be a presentation on the activities of the BCI.
Following the Annual Meeting, the annual competition for the fastest bartender of the year will take place in collaboration with Mekka Wines & Spirits and Fernet Branca. Competitors must prepare 3 types of drinks in the shortest time possible. All equipment and ingredients will be provided on-site, so participants do not need to bring anything with them. Amazing prices for the winners.
REGISTER TO THE COMPETITION HERE!
Please note that there is limited space for competitors, so we encourage interested parties to register as soon as possible. First come, first served.
After the competition, we will turn up the music and party!
All bartenders and industry folks are welcome to join the club, as well as participate in the evening’s events. All new members will receive a 10.000 kr. gift certificate for dinner and drinks from the Tapas chain.
Schedule for the evening:
- 17:00 – Doors open, light refreshments, and mingling
- 18:00 – Annual Meeting commences
- 20:30 – Fastest bartender competition
- 23:00 – Party
The Bartenders’ Club looks forward to seeing you at Sæta Svínið on Tuesday, November 4th at 17:00


