Bombay keppnin um Bláa Safírinn fer fram 23. janúar á Petersen svítunni!

English version can be found here in the registration form!

Fyrsta kokteilakeppni ársins, keppnin um Bláa Safírinn fer fram á Petersen svítunni 23. janúar.
10 bestu drykkirnir komast áfram í úrslit en forkeppnin verður í formi ,,walk-around” þar sem dómarar fara á milli staða dagana 15. og 16. janúar.

Vegleg verðlaun eru í boði fyrir efstu keppendur.
Sem dæmi: Ferðavinningur að andvirði 100.000 krónur, Bombay vörur og glæsilegur eignabikar.

Reglur keppninnar eru eftirfarandi:

  • Frjálst þema
  • Nota skal að minnsta kosti 3cl af Bombay vöru
  • Farið verður í ,,walk-around” dagana 15. og 16. janúar þar sem 10 bestu komast áfram í úrslit
  • Úrslitin verða haldin á Petersen svítunni 23. janúar (ATH breytt dagsetning)
  • Til þess að taka þátt þarf að fylla út formið hér að neðan, deila mynd af drykknum ásamt smá texta á Instagram og tagga Barþjónaklúbbinn (@bartendericeland og nota myllumerkið #bombaysapphire)
  • Skráning fer fram á bar.is
  • Skráningarfrestur er til 13. janúar
  • Skráðu þig hér!