Gamla Bíó

Gamla Bíó

Íslandsmót barþjóna var haldið í kvöld í Gamla bíó, en þar voru samankomnir einhverjar bestu barþjónar Íslands að keppa um Íslandsmeistaratitil Barþjóna.

Keppt var eftir alþjóðareglum International Bartenders Association (IBA).

Þeir sem kepptu voru Árni Gunnarsson frá veitingastaðnum Soho, Grétar Matthíasson frá Grillmarkaðinum og Elna María Tómasdóttir frá Nauthól.

Eftir harða keppni urðu úrslit á þessa leið:

sæti – Grétar Matthíasson (Grillmarkaðurinn) með drykkinn “Peach Perfect”
sæti – Elna María Tómasdótti (Nauthóll) með drykkinn “Orion”

sæti – Árni Gunnarsson (Soho) með drykkinn “My precius”

Grétar

Grétar

Einnig voru veitt verðlaun fyrir útlit drykkja og fagleg vinnubrögð:

Grétar Matthíasson – Fagleg vinnubrögð
Elna María Tómasdóttir – Besta skreytingin
Dómnefnd:

Jóhann Gunnar Arnarsson – Butler Íslands
Jónína Unnur Gunnarsdóttir – Hótelstjóri
Hafliði Halldórsson – Meistarakokkur og fyrrum forseti Klúbbs Matreiðslumeistara
Sigurjón Ragnarsson – Stjörnuljósmyndari
Alba E. Hough – Vínsérfræðingur
Það er Barþjónaklúbbur Íslands sem ber veg og vanda af skipulagningu og framkvæmd hátíðarinnar.