Verðlaun og veigamikil dómaraembætti: Ísland áberandi á Heimsmeistaramóti Barþjóna 2025

Heimsmeistaramóti barþjóna (World Cocktail Championship 2025) fór fram dagana 23.-27. Nóvember í Cartagena í Kólumbíu. Mótið, sem haldið er af International Bartenders Association (IBA), er stærsti viðburður sinnar tegundar þar sem barþjónar frá öllum heiminum leiða saman hesta sína.

Ísland átti afar sterka innkomu á mótið í ár, bæði á keppnissviðinu og bak við tjöldin í dómgæslu, sem vitnar um þá miklu virðingu sem borin er til íslenskrar barþjónamenningar á alþjóðavettvangi.

Róbert Aron með hin eftirsóttu Eagle Awards

Róbert Aron hlaut Eagle Award

Fulltrúi Íslands, Róbert Aron Garðarsson Proppé, stóð sig með mikilli prýði í keppninni. Hann keppti í flokknum „Before Dinner“ með kokteilnum Prelude og hafnaði í 2. sæti í sínum riðli í undankeppninni. Með þeim árangri tryggði hann sér sæti í 15 manna úrslitum mótsins.

Þótt Róbert hafi ekki náð inn í þriggja manna ofurúrslitin (Super Final), var frammistaða hans verðlaunuð sérstaklega. Róbert hlaut hin eftirsóttu Eagle Award, en þau verðlaun eru veitt þeim unga keppanda sem þykir hafa skarað fram úr hvað varðar fagmennsku og hæfileika.

Íslensk fagmennska í dómarasætum

Það var ekki aðeins á sviðinu sem Íslendingar létu til sín taka. Tveir af liðsmönnum Barþjónaklúbbs Íslands gegndu veigamiklum hlutverkum í dómgæslu mótsins, sem er mikill heiður.

  • Teitur Schiöth, forseti Barþjónaklúbbs Íslands, var skipaður yfirdómari í „Speech and Presentation“ (Sviðsframkoma og kynning). Hlutverkið er eitt það mikilvægasta í keppninni, enda snýst nútíma barþjónafræði ekki aðeins um drykkinn heldur hvernig hann er kynntur og upplifun gestsins.

  • Elna María Tómasdóttir var yfirdómari yfir skreytingum (Garnish). Skreytingar eru tæknilega krefjandi hluti keppninnar þar sem nákvæmni og sköpunargleði eru metin. Vegna starfa sinna og virðingar innan sambandsins var Elna María einnig valin til að dæma í sjálfum ofurúrslitunum (Super Final), þar sem úrslit mótsins réðust.

Úrslit mótsins

Eftir harða keppni í ofurúrslitunum stóðu eftirfarandi keppendur uppi sem sigurvegarar:

  1. Pierre Munier (Frakkland) – Heimsmeistari

  2. José Valintin (Púertó Ríkó)

  3. Jin Hwam Kim (Suður Kórea)

Barþjónaklúbbur Íslands óskar Róberti Aroni til hamingju með glæsilegan árangur og þakkar Teiti og Elnu Maríu fyrir að halda merki Íslands á lofti í stjórnkerfi keppninnar.

Sjá má meira efni frá ferðinni inni á Instagram síðu Barþjónaklúbbsins @bartendericeland