Jólabollukeppni Barþjónaklúbbs Íslands á Gauknum 11. desember til styrktar Píeta Samtökunum!

Jólin Jólin Jólin koma brátt, þið vitið hvað það þýðir! Tími til að fagna!

Endilega komdu og taktu þátt í árlegu Jólabollukeppni Barþjónaklúbbs Íslands til styrktar Píeta Samtökunum. Viðburðurinn verður haldinn á miðvikudaginn 11. desember á Gauknum kl. 17:00 – 20:00. 8 barir og veitingahús munu vera með jólabollu þar sem þeir munu gera allt sem í valdi sínu stendur til þess að þú smakkir jóladrykkinn þeirra. Þú getur styrkt með því að kaupa miða í dyrunum sem dugar svo fyrir drykk. Hafðu í huga að koma líka í flottustu/ljótustu jólapeysunni sem þú átt, þú gætir unnið eitthvað skemmtilegt!
1 miði= 1.000 kr.
5 miðar= 4.000 kr.
10 miðar= 7.000 kr.
Allur ágóði kvöldsins rennur svo til styrktar Píeta samtökunum. Píeta eru samtök gegn sjálfsvígum og sjálfsskaða. Píeta býður upp á úrræði fyrir einstaklinga í sjálfsvígshugleiðingum og þá sem stunda sjálfsskaða. Málefnið snertir flestar stórfjölskyldur hérlendis. Hlökkum til að sjá ykkur!
Jólabolla Barþjónaklúbbs Íslands