Jólin, Jólin, Jólin koma brátt!
Jólapúns í Jólaportinu er spennandi keppni milli hæfustu veitingahúsa Reykjavíkur, haldin 6. desember kl. 15:00–18:00 af Barþjónaklúbbi Íslands í Kolaportinu!
Hver býður upp á besta jólapúnsinn, bæði áfengan og óáfengan? Við ætlum að komast að því!
Drykkjarmiðar verða seldir á staðnum (1 miði = 1 drykkur) og allur ágóði rennur óskertur til Sorgarmiðstöðvarinnar. Sá staður sem fær flesta drykkjarmiða endar sem sigurvegari og fær að afhenda styrkinn til Sorgarmiðstöðvarinnar.
Komdu og njóttu ljúffengs jólapúns, og styrktu um leið afar mikilvægt málefni.
Verð:
1 miði = 1.500 kr.
5 miðar = 6.000 kr.
10 miðar = 10.000 kr.
Um Sorgarmiðstöðina:
Markmið Sorgarmiðstöðvar er að styðja syrgjendur og alla þá sem starfa að velferð þeirra. Starfsemin felst m.a. í stuðningi, ráðgjöf, upplýsingaþjónustu og fræðslu.


