Nú fer að líða að hinni árlegu Negroni Week og vonumst við til þess að sem flestir taki þátt.


Hvað er Negroni Week
Árið 2013 slógu Imbine Magazine upp Negroni Week í fyrsta sinn til þess að fanga vinsælasta og besta drykk í heimi. Hugmyndin var að safna pening til styrktar góðgerðarmála. Síðan 2013 hefur Negroni Week farið úr 120 börum og veitingastöðum sem upprunalega tóku þátt í þúsundir um allan heim.


Hvernig tek ég þátt?
Það eina sem þú þarft að gera er að fara inná www.negroniweek.com og skrá staðinn þinn þar, vefsíðan mun taka þig skref fyrir skref og hægt er að velja hversu mikið maður vill gefa til styrktar góðgerðarmála sem Negroni Week styrkir á heimsvísu. Lokað er fyrir skráningu 13. September
Þar færðu markaðsefni og beinagrind af Negroni Week seðlinum. Þú ræður hversu marga mismunandi Negroni þú hefur á þínum seðli. Þegar þú ert tilbúin með þinn seðill, sendir þú hann á Loga hjá Ölgerðinni (logi@olgerdin.is) og hann mun sjá um að preta þá út og koma þeim til þín. Seðlar þurfa að berast í síðasta lagi miðvikudaginn 11. September.
Allir þeir sem taka þátt fá tilboð á sérvöldum vörum frá öllum helstu birgjum landsins.


Af hverju á ég að taka þátt?
Betri spurning er af hverju ekki? Í fyrra tóku um 30 staðir þátt á Íslandi sem gerir Negroni Week að einum stærsta bar og veitingahúsa viðburði ársins á Íslandi. Lágmarks þátttökugjald eru 25 $ sem þú ert fljótur að fá til baka með afsláttum frá birgjum. Prentun á seðlum er séð um af Ölgerðinni og fjöldi viðburða í boði alla vikuna.


Besti Negroni 2024
Keppt verður um Besta Negroni 2024, Besta Óáfenga Negroni 2024 og Besta Gin fyrir Negroni 2024. Barþjónaklúbbur Íslands munu senda út nánari upplýsingar varðandi keppnina.
Mia Magic eru Góðgerðarsamtök Negroni Week 2024
Allt um Miu á miamagic.is/styrkja-miu/
Negroni Week 2024 safnar til styrkat Miu með sölu á taupokum, derhúfum og númerum í Negroni Hlaupið
Taupoki 4.990 kr.
Derhúfa 5.990 kr.
Þátttökugjald í Negroni Hlaupið 2024 4.990 kr.


Viðburðir á Negroni Week:
Mánudagurinn 16. september
Negroni Bingó á Bingó Drinkery, viðburður verður auglýstur hjá Bingó.
Þriðjudagurinn 17. september
Ljósmyndanámskeið með Jakob Eggertssyni. skráning verður á þennan viðburð á facebook hjá Bingó.
Barþjónaklúbbur Íslands rölta um og smakka og finna besta Negroni 2024, besta óáfenga Negroni 2024 og besta Gin fyrir Negroni 2024
Miðvikudagurinn 18. september
Negroni Hlaupið 2024
Hlaupið verður 3 hringi í kringum Austurvöll frá Gilligogg. Allir keppendur fá glas með klaka og Campari, eftir fyrsta hring velja keppendur sér gin, hringur tvö vermouth og svo loka hringurinn fyrir fyrsta sæti.
Fimmtudagurinn 19. september
Heimsókn til félaga í Samtökum Íslenskra Eimingarhúsa
Í þennan viðburð verður að skrá sig, Email á fannar@klakavinnslan.is
Lokað er fyrir skráningu 17. september
Fyrsta rúta fer frá Arnarhóli kl. 12:00
Heimsóknir í:
  • Marberg
  • 64° Distillery
  • Hovdenak Distillery
  • Eimverk
Rúta keyrir fólk á milli staða og aftur niður í bæ á Public House. Sértilboð á mat og drykk verður fyrir okkur
Föstudagurinn 20. september
Við hvetjum alla til að hafa samband við sína birgja og skipuleggja Pop-up viðburði hjá sér fyirr þess helgi
Laugardagurinn 21. september
Við hvetjum alla til að hafa samband við sína birgja og skipuleggja Pop-up viðburði hjá sér fyrir þessa helgi
Sunnudagurinn 22. september
Lokahóf Negroni Week 2024 verður haldið á Rauða barnum á NASA.
Húsið opnar kl: 20:00 og tilkynningar verða kl:21:00. Tilboð á barnum 😊
Tilkynnt verður:
  • Besti Negroni 2024
  • Besti óáfengi Negroni 2024
  • Besta Gin fyrir Negroni 2024
  • Hversu mikið safnaðist fyrir góðgerðarsamtök Negroni Week 2024 Mia Magic

Vefsíða Negroni Week: https://www.negroniweek.com/

Negroni Week