
Gamla Bíó
Undankeppni í Íslandsmóti barþjóna og vinnustaða keppni fór fram í Gamla Bíó og öttu þar kappi 37 barþjónar og sýndu uppá hvað þeir hafa fram á að færa í gerð sætra kokteila. Keppendur fengu 15 mínútur til að gera skreytinguna á drykkinn og svo 7 mínútur til að hrista drykkinn saman og dómnefnd fer eftir er bragð, útlit, angan og heildaráhrif drykkjarins í kokkteilinum.
Úrslit urðu eftirfarandi og hafa unnið sér inn rétt til þáttöku í úrslitinum á sunnudagskvöldið n.k. (raðað eftir stafrófsröð):
5 manna úrslit í RCW:
Brooklyn bar
Kjallarinn
Le bistro
Sushi samba
Uno
5 manna úrslit Vinnustaðakeppni:
Arnar Geir Bjarkasson, Kaffi París
Brunó Falcó, Kjallarinn
Guðjón Sigurður Hermannson, Kaffi París
Hlynur Björsson, Kol restaurant
Kári Sigurðsson, Apótek
5 manna úrslit Íslandsmóti barþjóna:
Árni Gunnarsson, Gullöldin
Elna María Tómasdóttir, Hilton
Guðmundur Sigtryggsson, Hilton
Leó Ólafsson, Kol Restaurant
Stefán Ingi Guðmundsson, Steikhúsið
Gleðin heldur áfram og er fjöldinn allur af flottum viðburðum á helstu veitinga og skemmtistöðum landsins og í dag laugardaginn 7. febrúar er á dagskrá svokallað Master Class á Hótel Plaza frá kl 14, þar gefst gestum kostur á að drekka í sig visku og fróðleik frá nokkrum af fremstu vínsérfræðingum í heiminum, jafn erlendum sem innlendum.