Reykjavík Cocktail Weekend verður að Reykjavík Cocktail Week!

Reykjavík Cocktail Weekend verður að Reykjavík Cocktail Week í fyrsta skiptið 2025! Stærsta kokteilahátíð landsins er að verða en stærri! Hátíðin verður haldin 31. mars til 6. apríl og bætast þannig tveir dagar við þessa uppskeru hátíð kokteilsins á Íslandi.

Hátíðin var fyrst haldin árið 2014 og var markmiðið með henni að fá alla helstu bari, veitingahús og vínbirgja Reykjavíkur til þess að vinna saman að því að efla bar menningu í borginni. Aðal viðburður hátíðarinnar, Reykjavík Cocktail Week Expo verður á sínum stað í Hörpu miðvikudaginn 2. apríl þar sem Íslandsmeistaramót Barþjóna fer einnig fram. Áhugasamir geta fylgst með á Instagram og Facebook reikningi Barþjónaklúbbsins. Einnig munu allar upplýsingar varðandi hátíðina birtast á bar.is þegar nær dregur.

Reykjavik Cocktail Week 2025