Það er loksins komið að þessu, skráning veitingahúsa- og skemmtistaða fyrir Reykjavík Cocktail Weekend er hafin!
Reykjavík Cocktail Weekend snýr aftur í sinni fyrri dýrð!
Barþjónaklúbbur Íslands stendur fyrir þessari árlegu hátíð í samstarfi við helstu vínbirgja, veitingahús og skemmtistaði Reykjavíkur dagana 29. mars – 02. apríl 2023.
Hátíðin hefst formlega á miðvikudeginum 29. mars með opnunarhófi og stendur til sunnudagsins 2. apríl þar sem henni lýkur með úrslitakeppni í Íslandsmóti barþjóna, þema keppni og keppni milli veitingastaða um RCW drykk ársins 2023. Vínkynningar birgja verða á sínum stað á fimmtudeginum 30. Mars, en þá fer einnig fram forkeppni í Íslandsmóti barþjóna og þema keppni.
Þetta árið verður hátíðin enn glæsilegri því Barþjónaklúbbur Íslands fagnar 60 ára afmæli.
Opnað hefur verið fyrir skráningu veitingahúsa og skemmtistaða. Þátttökugjaldið er 50.000 kr sem greiðist sem styrkur til Barþjónaklúbbs Íslands. Skráningar- og skilafrestur uppskrifta fyrir RCW er 15. mars.
Innifalið í þátttöku RCW er nafn staðarins á öllum kokteila seðlum sem dreift verða á alla bari og veitingahús sem taka þátt. Einnig fá þátttakendur sýnileika í auglýsingum í kringum hátíðina og möguleika á því að halda sérstaka viðburði með samstarfsaðilum.
Til þess að skrá sig þarf hver staður að útbúa 5 kokteila seðil með vörum frá að minnsta kosti 5 samstarfsaðilum hátíðarinnar sem þarf að skila inn ekki seinna en 15. mars.
Samstarfsaðilar RCW þetta árið eru:
Mekka Wines & Spirits, Globus, Innnes, CCEP, Ölgerðin Egill Skallagrímsson og Rolf Johansen & Co.
Barþjónaklúbburinn sér svo um að prenta út seðlana og koma þeim á viðeigandi staði.
Hver staður þarf svo að tilnefna 1 kokteil af seðlinum til þess að keppa um Reykjavík Cocktail Weekend drykk ársins en hann verður dæmdur af sérstakri dómnefnd sem mun labba á milli staða á miðvikudeginum 29. mars. Eftir það komast 4 áfram sem munu keppa í úrslitum á sunnudeginum 2. apríl þar sem sigurvegarinn hreppir titilinn Reykjavík Cocktail Weekend drykkur ársins.
Skráning fer fram hér að neðan: