SUMARPARTÝ BARÞJÓNAKLÚBBS ÍSLANDS 2026 (english below)

Þriðjudaginn 9. júní ætlum við að taka á móti sumrinu með alvöru stemningu á Petersen Svítunni frá kl. 17:00.

Boðið verður upp á pizzur, nachos, góða drykki og DJ sem sér um tónlistina fram á kvöld.

Einnig fara fram Fernet Branca Barback Leikarnir, þar sem lið takast á í skemmtilegum hraða- og þrautakeppnum innblásnum af lífinu bak við barinn. Þar reynir á samvinnu, úthald, lipurð og hæfileikann til að halda ró sinni í skipulagðri ringulreið. Frábær verðlaun í boði frá Fratelli Branca í boði fyrir hlutskörpustu liðin! Skráning og frekari upplýsingar hér að neðan.

Þetta verður kvöld fullt af stemningu og góðum félagsskap, fullkomið tækifæri fyrir nýtt fólk í geiranum til að kynnast íslensku bar- og veitingasamfélagi, hitta fagfólk og upplifa menninguna í kringum bransann.

Hvort sem þú ert barþjónn, þjónn, kokkur, glasabarn, rekstraraðili eða ný/nýr í geiranum, þá ert þú hjartanlega velkomin/n.

Skráning fer fram á viðburðinn og keppnina HÉR!


BARTENDERS CLUB OF ICELAND SUMMER PARTY 2026

On Tuesday June 9th, we’re kicking off the summer season with a proper hospitality gathering at Petersen Svítan starting at 17:00.

There will be pizza, nachos, great drinks, and a DJ keeping the atmosphere going throughout the evening.

The night will also feature the Fernet Branca Barback Games, where teams compete in fun and chaotic speed and challenge-based games inspired by life behind the bar. The games test teamwork, endurance, coordination, and the ability to stay calm in organized chaos. Amazing prizes from Fratelli Branca await the top-performing teams! Registration and further information can be found below.

Expect a night full of great energy, networking, and good company — the perfect opportunity for new people in the industry to get to know Iceland’s restaurant and bar community, meet hospitality professionals, and experience the culture surrounding the industry firsthand.

Whether you’re a bartender, waiter, chef, barback, manager, or completely new to hospitality, you are more than welcome to join us.

RSVP and sign up for the competition HERE!


Barback Games Upplýsingar/Info:

Hverjir eru raunverulegu vinnuhestarnir á bak við barinn þegar álagið er í hámarki?
Hverjir redda málunum þegar klakinn er búinn, línurnar stíflaðar og glösin að klárast?

Það er kominn tími til að draga „ósýnilegu hetjurnar“ úr skugganum og upp í sviðsljósið!
Fernet-Branca á Íslandi og Barþjónaklúbbur Íslands kynna með stolti villtasta bransakvöld ársins: Barback Games 2026.

Við ætlum að breyta hinu glæsilega útisvæði á Petersen Svítunni í þrautarbraut þar sem reynir á snerpu, jafnvægi, hraða og faglega vinnu.

Keppt er í 2ja manna liðum (boðhlaupsformi) þar sem þið mætið sem fulltrúar ykkar staðar. Barþjónaklúbburinn sér um stranga dómgæslu þar sem hver sekúnda telur og glerbrot eða vökvaspillir kosta dýrmæt refsistig!

Brautin reynir á allt það helsta úr vaktinni:

Case Stack & Carry: Kassaburður og nákvæm tækni í sik-sak.

Keg Lift & Change: Kútatækni og hraðskipti undir pressu.

The Tray Run: Glerbakkahlaup í gegnum þröng horn Petersen Svítunnar.

Bottle Grab & Sort: Snerpa og hraðaflokkun í speed rail.

Fyrirkomulag: Keppnin byrjar á hreinni tímatöku (undanrásir). Fjögur fljótustu liðin (Top 4) fara beint í hrikaleg einvígi í undanúrslitum þar til við stöndum uppi með seigasta barteymi landsins!

  • Hvar: Útisvæðið á Petersen Svítunni!
  • Hvenær: Þriðjudaginn 9. juní 2026.
  • Liðskipan: 2 keppendur per lið (mætið í lokuðum skóm!).
  • Skráning: Ókeypis en TAKMARKAÐUR LIÐAFJÖLDI! Fyrstur kemur, fyrstur fær!

Auk heiðursins og rándýra bikarsins verða opinberar og afar fágætar Fernet-Branca Challenge Coins í boði, auk hrikalega flotta vinninga frá Fratelli Branca fyrir hlutskörpustu liðin.

Tryggðu þínu fólki pláss í brautinni og sýndu öllum bransanum úr hverju þið munið gerð!

Sumarpartý Barþjónaklúbbsins